11.990 kr.
Radius raspur með fínu blaði sem er beitt eins og rakvélarblað. Hann skilar sléttri og mjúkri lokaáferð. Hann er oftast notaður á eftir Radius 2 raspinum, en hann skilar einnig góðum árangri einn og sér.
Radius raspurinn hentar vel til að rúna brúnir hófsins og móta svokallað ,,Mustang Roll“. Raspurinn sjálfur er bogadreginn sem rúnar flötinn sem raspaður er. Raspurinn fer vel í hendi og er léttur. Málmurinn er ryðfrír og auðvelt er að skipta um blað í raspinum. Segull er í toppi raspsins.
Radius raspurinn kemur í tveim útgáfum, annars vegar með grófu og hins vegar fínu blaði. Til að ná bestum árangri er gott að byrja á Radius 1 (svarta) raspinum sem vinnur á hörðum hófveggnum og flýtir fyrir mótun. Radius 2 (hvíti) raspurinn er síðan notaður til þess að fá slétta og mjúka áferð í lokin. Hann virkar best þegar búið er að grófraspa hófveggin.
Er í pöntun