11.990 kr.
Tenntur raspur sem vinnur vel á ójöfnu og hörðu hófefni. Afar hentugur til að taka niður falskan hófbotn. Skilur eftir grófa áferð.
Hófar eiga það til að slitna ójafnt, ekki síst á hælum og í hófbotni. Hæla- og botnraspurinn er hannaður með það í huga að auðvelt sé að lækka innri brúnir á hælum og raspa niður falskan hófbotn. Raspurinn nær bæði yfir flöt svæði og dýpri hliðar hælanna.
Á öðrum enda raspsins er járnendi sem nýtist vel til þess að hreinsa hófinn og kverkar hóftungunnar. Auðvelt er að brýna raspinn og niðhalda gæðum hans.
Er í pöntun