6.990 kr.
Fyrir þá sem vilja hafa þetta léttara!
24/7 skórnir eru límdir á hófinn og hefur hófurinn því vernd allan sólarhringinn. Þetta er valkostur sem sparar knöpum tíma við að klæða hestinn í skó í hvert skipti sem hann er þjálfaður og þar að auki góð vörn fyrir hesta sem eru t.d. að koma af skeifum í fyrsta skipti eftir langan tíma.
ATH. ÞESSIR SKÓR ERU SELDIR Í STÖKU
Skósólinn er sá sem hefur komið best út úr prófunum Equine Fusion þar sem höggdempun var sérstaklega skoðuð. Hófbotninn hvílir i heild sinni í skósólanum sem tryggir eðlilega dreifingu þyngdar á hófinn og gefur hestinum góða tilfinningu fyrir undirlaginu. Þá er hælsvæðið sérstaklega teygjanlegt á skónum til ad hámarka hreyfanleika og þenslu. Þannig tryggjum við hámarks möguleika á blóðflæði um hófinn sem styður við eðlilega ferla hófsins til höggdempunar.
Skórnir eru límdir á með Equine Fusion líminu.
Mikilvægt er að mæla hóf hestsins áður en skóstærð er valin. Ef þig vantar aðstoð við að finna rétta stærð fyrir þinn hest getur þú fengið aðstoð hér.


