SKU : hofm1-1

Lím fyrir 24/7 reiðskó

5.990 kr.

Lím sem ætlar er til að festa 24/7 skó á hófa.

Túpan er 200ml 

Notkunarleiðbeiningar

• Geymið límið við stofuhita og aldrei undir frostmarki þar sem frost skemmir límið.

• Tveggja þátta límið hefur vinnslutíma upp á 20–30 sekúndur og hörðnunartíma um það bil 3 mínútur við stofuhita (20–25°C).

• Athugið að hitastig hefur áhrif á vinnslu- og harðnunartíma. Lægri hiti lengir tímann en hærri hiti styttir hann.

• Límið er þróað til notkunar á klaufum og hófum dýra. Það getur valdið ertingu á húð og skal því aðeins nota í vel loftræstu rými og með hanska. Sjá nánari öryggisupplýsingar í fylgiskjölum með límpakkanum.

• Áður en límið er blandað skal jafna hylkið með því að þrýsta smá magni út til að tryggja að báðir þættir komi jafnt út.

Ráðlagt magn af lími í einn 24/7 Jogging Shoe

Stærð 7–9: um 15 ml eða um það bil 1,5 pumpur úr 200 ml hylki

Stærð 10–14: um 25 ml eða um það bil 2,5 pumpur úr 200 ml hylki

Stærð 15–16: um 30 ml eða um það bil 3 pumpur úr 200 ml hylki

Á lager

Fleiri vörur