Almennir skilmálar albina.is

Vefverslunin Albína.is er rekin af Haukey slf., kt. 410323-0790, með lögheimili að Skarðshömrum, 311 Borgarbyggð. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á hestaskóm og tengdum vörum fyrir hestamenn.

 VSK númer: 147927

Netfang: albina@albina.is

Sími: 847-8061

Öll verð í vefversluninni eru gefin upp með 24% virðisaukaskatti (VSK) nema annað sé tekið fram. Greiðslur fara fram í gegnum öruggar greiðslugáttir og eru viðskiptavinum boðin greiðsla með debit- og kreditkortum. Óski fólk eftir að staðgreiða vörur með seðlum er hægt að senda fyrirspurn á albina@albina.is

Við afgreiðum pantanir innan 1–3 virkra daga frá kaupum og komum þeim til fluttningsaðila. Flutningsaðili flytur vöruna á umbeðin afhendingarstað samdægurs. Vörur eru sendar með Dropp, en einnig er hægt að sækja vörur til okkar á Breiðhöfða 53, 110 Reykjavík.

  • Afhendingartími: Yfirleitt 1–4 virkir dagar eftir pöntun.

  • Sendingarkostnaður: Gjald fyrir afhendingu á Dropp afhendingarstaði er 750 kr. m/vsk á höfuðborgarsvæðinu og 950 kr m/vsk. Gjald fyrir heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu er 1.350 kr. m/vsk. Þessi kostnaður er reiknaður sérstaklega í kaupferli og sýnilegur áður en kaup eru staðfest. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp. Eingöngu er hægt að fá vörur Albína.is sendar innan Íslands. Albína.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.

Ef vara reynist gölluð eða skemmd við afhendingu, vinsamlegast hafðu samband við okkur innan 2 daga frá móttöku vörunnar. Við leysum málið með endurgreiðslu eða nýrri vöru, eftir samkomulagi.

Við vinnum með persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarlög nr. 90/2018 og GDPR (sjá nánar í persónuverndarstefnu). Engar upplýsingar eru afhentar þriðja aðila nema nauðsynlegt sé vegna afhendingar eða lagalegra skyldna.

Skilmálarnir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur verða mál höfðuð fyrir Héraðsdómi Vesturlands nema annað sé áskilið samkvæmt lögum.