Hvað er albina.is?

Markmið albína.is er að gera skeifnalausan lífstíl aðgengilegri fyrir íslenskt hestafólk ásamt því að bjóða upp á nýjar lausnir við heilsufarslegum vandamálum tengdum hófum.
Albína.is er rekið af Haukey slf. (kt. 410323-0790).
Símanúmer: 847 - 8061

Framtíðin er skeifnalaus

Síðastliðin ár hefur áhugi vísindamanna í hestafræðum verið vakin á áhrifum járninga, formi hófsins, eðlifræði hans og mikilvægi náttúrulegra eiginleika hans í hreyfiferil hestsins. Rannsóknir sýna að hófar tapa eðlisfræðilegum eiginleikum með járningu og veldur það takmörkun á dempun og blóðflæði um hóf. Þá sýna rannsóknir að ummál hófa sem eru járnaðir minnkar þeir fletjast út. 

Með tilkomu hestaskóbúnaðar siglum við inn í nýja tíma í hestamennsku, þar sem náttúrulegir eiginleikar hófsins eru settir í forgang. Lífstíllinn kallar á heildræna nálgun í hestahaldi en er fjárhagslega hagkvæmur og afar fjölbreyttur!